Progress

Sími: 568 3063  I  Vaktsími (allan sólahringinn) 892 3063

Umsagnir viðskiptavina varðandi þjónustu okkar:

 

"Þetta er allt annað líf. Okkur líður miklu betur eftir að K-2 tók loftræstikerfið okkar í gegn. Við erum mjög ánægð með framgöngu starfsmanna K-2 og mælum með þessu fyrirtæki."

Umsögn frá Kópavogsbæ.

"Starfsfólk K-2 hreinsaði loftræstikerfið í Ísaksskóla og gerði það af lipurð og röggsemi. Greinileg fagmennska var höfð í fyrirrúmi og öll framkoma starfsfólks K-2 var til fyrirmyndar. Þá hefur starfsfólk Ísaksskóla haft á orði að andrúmsloftið sé greinilega betra. Öll samskipti við K-2 hafa verið mjög góð og við þökkum fyrir gott samstarf sem vonandi verður framhald á."
Umsögn frá Ísaksskóla í Reykjavík.

"Starfsmenn K-2 voru kurteisir, gengu hljóðlega um og unnu verk sitt mjög vel. Að verki loknu var allt skínandi hreint og vel frágengið."
Umsögn frá St. Jósefsspítala í Hafnarfirði.

"Þetta eru fyrirmyndarpiltar sem unnu vel og fagmannlega. Við erum mjög ánægðir með þann góða tækjabúnað sem þeir hafa og þá þjónustu sem við fengum hjá K-2."
Umsögn frá Rannsóknaskipinu Dröfn.

"Starfsmenn K-2 hreinsuðu loftræstikerfið í Skógarfossi í fyrra. Við erum mjög ánægðir með þjónustuna og finnum greinilega breytingu til batnaðar. Það er einfaldlega miklu betra loft um borð og mun meiri kraftur á kerfinu."
Umsögn frá Hf. Eimskipafélagi Íslands

"Fólkið í blokkinni okkar er mjög ánægt og við finnum merkjanlegan mun á loftinu í íbúðunum. Þetta var greinilega mjög tímabært verk og starfsfólk K-2 vann það fljótt og örugglega."
Umsögn frá húsfélaginu í Engihjalla 7, Kópavogi.

 

Vinnuregla okkar er einföld og skýr: Við bjóðum alltaf betur!
Hafðu samband núna og við komum á staðinn.