K-2 Loftstokkahreinsun býður upp á það besta sem völ er á í dag í alhliða hreinsun og
sótthreinsun loftræstikerfa í skipum og eldhúsfáfum.
Við notum bestu fáanlegu efni, tæki og búnað og höfum á að skipa fagmönnum sem hafa
sérhæft sig í þeirri þjónustu sem við veitum, hvar á landinu sem er.
RANNSÓKNIR HAFA LEITT Í LJÓS:
- Að við eyðum um það bil 90% af tíma okkar innandyra og því hefur það loft sem við öndum að okkar mikil áhrif á heilsuna.
- Tengsl milli mengunar í lofti innandyra við margvíslega sjúkdóma
- Að loft innandyra getur verið allt að 70 sinnum mengaðra en loft utandyra.
- Að svokölluð húsasótt (e. Sick Building Syndrome) einkennist af vanlíðan, ofnæmi og astma. Húsasótt er þekkt afleiðing lélegrar loftræstingar. Starfsfólk merkir fljótt þegar loftræstikerfið er ekki að virka sem skyldi; vanlíðan, höfuðverkur, húðerting, augn- og munnþurrkur og fleiri óþægindi eru dæmi um einkenni húsasóttar. Atriði sem geta valdið minni afköstum og aukið á fjarvistir starfsmanna. Fólk með ofnæmi og astma er sérstaklega viðkvæmt fyrir húsasótt.

Frá A til Ö
Eðlilegt er að gera úttekt á loftræstikerfi og hreinsa það á 3-5 ára fresti (það á sérstaklega við um útsog). Þess á milli er nauðsynlegt að yfirfara kerfið og hafa eftirlit með því.
Loftræsting er þrifin og sótthreinsuð, auk þess sem við bjóðum upp á sérhannaðar síur í allar vistarverur til að koma í veg fyrir að ryðagnir kastist inní vistaverur.
Nýjung - Byotrol ver og sótthreinsar!
K-2 Lofstokkahreinsun hefur einkaleyfi á notkun á svonefnds Byotrol-misturs en það hefur valdið byltingu í sótthreinsun.
Með því að sótthreinsa loftræstikerfið með Byotrol-mistri og húða það með polymer, lengist líftími kerfisins. Aðferðin dregur mjög úr hættunni á að örverur, rykagnir og önnur skaðleg óhreinindi setjist að í kerfinu.
Hvað er Byotrol?
Byotrol-mistur er náttúruvænt hreinsiefni sem dælt er inn í rýmið sem á að sótthreinsa. Mistrið smýgur um allt rýmið, líka á þá staði sem hefðbundnar hreinsunaraðgerðir ná ekki til. Byotrol er með öllu hættulaust. Rannsóknir sýna að efnið er 99,9% virkt gegn bakteríum, þ.m.t. salmonellu, listeríu og sthaphylococcus.
Algengar spurningar sem við fáum um loftræstikerfi um borð í skipum.
A) Er kerfið að skila því sem ætlast er til af því?
B) Þarf að hreinsa kerfið, að hluta til eða í heild?
C) Er kerfið í góðu lagi eða er hægt að betrumbæta það?
Hafðu samband og pantaðu ástandsskoðun og tilboð, þér að kostnaðarlausu.
Vinnuregla okkar er einföld og skýr: Við bjóðum alltaf betur!
Við verklok afhendis verkkaupa eftirfarandi:
- Myndir sem sýna ástand loftræstikerfis fyrir og eftir hreinsun.
- Upplýsingar um ástand loftræstikerfis fyrir og eftir hreinsun.
- Staðfestingarvottorð um hreinsun á loftræstikerfi.
Sími: 568 3063
Vaktsími (allan sólarhringinn) 892 3063
Netfang
This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it
Umsagnir viðskiptavina varðandi þjónustu okkar:
"Starfsmenn K-2 hreinsuðu loftræstikerfið í Skógarfossi í fyrra. Við erum mjög ánægðir með þjónustuna og finnum greinilega breytingu til batnaðar. Það er einfaldlega miklu betra loft um borð og mun meiri kraftur á kerfinu."
Umsögn frá Hf. Eimskipafélagi Íslands
"Þetta eru fyrirmyndarpiltar sem unnu vel og fagmannlega. Við erum mjög ánægðir með þann góða tækjabúnað sem þeir hafa og þá þjónustu sem við fengum hjá K-2."
Umsögn frá Rannsóknaskipinu Dröfn.