K-2 Loftstokkahreinsun býður upp á það besta sem völ er á í dag í alhliða hreinsun og
sótthreinsun loftræstikerfa í skipum og eldhúsfáfum.
Við notum bestu fáanlegu efni, tæki og búnað og höfum á að skipa fagmönnum sem hafa
sérhæft sig í þeirri þjónustu sem við veitum, hvar á landinu sem er.
RANNSÓKNIR HAFA LEITT Í LJÓS:
- Að við eyðum um það bil 90% af tíma okkar innandyra og því hefur það loft sem við öndum að okkar mikil áhrif á heilsuna.
- Tengsl milli mengunar í lofti innandyra við margvíslega sjúkdóma
- Að loft innandyra getur verið allt að 70 sinnum mengaðra en loft utandyra.
- Að svokölluð húsasótt (e. Sick Building Syndrome) einkennist af vanlíðan, ofnæmi og astma. Húsasótt er þekkt afleiðing lélegrar loftræstingar. Starfsfólk merkir fljótt þegar loftræstikerfið er ekki að virka sem skyldi; vanlíðan, höfuðverkur, húðerting, augn- og munnþurrkur og fleiri óþægindi eru dæmi um einkenni húsasóttar. Atriði sem geta valdið minni afköstum og aukið á fjarvistir starfsmanna. Fólk með ofnæmi og astma er sérstaklega viðkvæmt fyrir húsasótt.
Frá A til Ö
Eðlilegt er að gera úttekt á loftræstikerfi og hreinsa það á 3-5 ára fresti (það á sérstaklega við um útsog). Þess á milli er nauðsynlegt að yfirfara kerfið og hafa eftirlit með því.
Við bjóðum upp á hreinsun og eftirlit á blásurum loftræstikerfa. Regluleg hreinsun á blásurum stuðla að kröftugra kerfi, lengri líftíma blásara og rafmagnssparnaði, þar sem álagi er haldið í lágmarki.
Við mælum með síuskiptum 1-2 sinnum á ári til að tryggja hámarksvirkni kerfisins. Þannig skapast betra, öruggara og heilsusamlegra starfsumhverfi.
Við getum annast alla þessa verkþætti fyrir þig, frá A til Ö.
Nýjung - Byotrol ver og sótthreinsar!
K-2 Lofstokkahreinsun hefur einkaleyfi á notkun á svonefnds Byotrol-misturs en það hefur valdið byltingu í sótthreinsun.
Með því að sótthreinsa loftræstikerfið með Byotrol-mistri og húða það með polymer, lengist líftími kerfisins. Aðferðin dregur mjög úr hættunni á að örverur, rykagnir og önnur skaðleg óhreinindi setjist að í kerfinu.
Hvað er Byotrol?
Byotrol-mistur er náttúruvænt hreinsiefni sem dælt er inn í rýmið sem á að sótthreinsa. Mistrið smýgur um allt rýmið, líka á þá staði sem hefðbundnar hreinsunaraðgerðir ná ekki til. Byotrol er með öllu hættulaust. Rannsóknir sýna að efnið er 99,9% virkt gegn bakteríum, þ.m.t. salmonellu, listeríu og sthaphylococcus.
Eru nóg að skipta um síur?
Þrátt fyrir eðlilegt viðhald, sem m.a. felst í síuskiptum, safnast óhreinindi, bakteríur og gerlar óhjákvæmilega innan í loftræstistokkana. Því er ekki nóg að skipta eingöngu um síur, heldur þarf að hafa reglulegt eftirlit með stokkunum sjálfum.
A) Við bjóðum upp á mælingu á hita, raka, og Co2. til þess að kanna ástand íverusvæðis starfsfólks.
B) Við bjóðum uppá myndartökur inní loftræstikerfum og notum til þess fjarstýrðan bíl.
C) Alhliða loftræstihreinsun með bestu fáanlegu tækjum og búnaði.
D) Við sótthreinsum allt kerfið með náttúruvænum efnum eftir hreinsun og húðum með polymer. Þannig verjum við allt loftræstikerfið og lengjum líftíma þess og höldum um leið örverum, bakteríum og öðrum óhreinindum í burtu.
E) Áður en sjálft verkið hefst metum við stöðuna nákvæmlega með því að gera úttekt á kerfinu.
F) Við vekjum athygli á því að nú geta viðskiptavinir okkar gert þjónustusamning við K-2 og þannig fengið bestu þjónustuna á bestu kjörum.
Algengar spurningar sem við fáum um loftræstikerfi
A) Er ég að skipta óþarflega oft um síur?
B) Er ég að nota réttar síur?
C) Er kerfið að skila því sem ætlast er til af því?
D) Þarf að hreinsa kerfið, blásara, loftristar að hluta til eða í heild?
E) Er kerfið í góðu lagi?
Hafðu samband og pantaðu ástandsskoðun og tilboð, þér að kostnaðarlausu.
Vinnuregla okkar er einföld og skýr: Við bjóðum alltaf betur!
Við verklok afhendis verkkaupa eftirfarandi:
A) Myndir sem sýna ástand loftræstikerfis fyrir og eftir hreinsun.
B) Upplýsingar um ástand loftræstikerfis fyrir og eftir hreinsun.
C) Staðfestingarvottorð um hreinsun á loftræstikerfi.
Sími: 568 3063
Vaktsími (allan sólarhringinn) 892 3063
Netfang
This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it