K-2 Náttúruvæn loftstokkahreinsun

LoftstokkahreinsunK-2 Loftstokkahreinsun býður upp á það besta sem völ er á í dag í alhliða hreinsun og sótthreinsun, viðhaldi og eftirliti loftræstikerfa í fyrirtækjum og stofnunum, fjölbýlishúsum, skipum o.fl.
Við notum bestu fáanlegu efni, tæki og búnað og höfum á að skipa fagmönnum sem hafa sérhæft sig í þeirri þjónustu sem við veitum, hvar á landinu sem er.

Frá A til Ö
Eðlilegt er að gera úttekt á loftræstikerfi og hreinsa það á 3-4 ára fresti. Þess á milli er nauðsynlegt að yfirfara kerfið og hafa eftirlit með því.
Við mælum með síuskiptum og sótthreinsun 1-2 sinnum á ári til að tryggja hámarksvirkni kerfisins. Með því lengist ekki einungis líftími sjálfs kerfisins, heldur skapast betra, öruggara og heilsusamlegra starfsumhverfi.
Við getum annast alla þessa verkþætti fyrir þig, frá A til Ö.

Nýjung - Byotrol ver og sótthreinsar!
K-2 Lofstokkahreinsun hefur einkaleyfi á notkun á svonefnds Byotrol-misturs en það hefur valdið byltingu í sótthreinsun.
Með því að sótthreinsa loftræstikerfið með Byotrol-mistri og húða það með polymer, lengist líftími kerfisins. Aðferðin dregur mjög úr hættunni á að örverur, rykagnir og önnur skaðleg óhreinindi setjist að í kerfinu.

Hvað er Byotrol?
Byotrol-mistur er náttúruvænt hreinsiefni sem dælt er inn í rýmið sem á að sótthreinsa. Mistrið smýgur um allt rýmið, líka á þá staði sem hefðbundnar hreinsunaraðgerðir ná ekki til. Byotrol er með öllu hættulaust. Rannsóknir sýna að efnið er 99,9% virkt gegn bakteríum, þ.m.t. salmonellu, listeríu og sthaphylococcus.

Húsasótt: Vanlíðan, ofnæmi og astmi
Húsasótt gerir vart við sig annað slagið og getur lýst sér á margvíslegan hátt. Starfsfólk merkir fljótt þegar loftræstikerfið er ekki að virka sem skyldi. Það kemur m.a. fram í vanlíðan, höfuðverk, húðertingu, augn- og munnþurrk og öðrum óþægindum, sem geta valdið minni afköstum og jafnvel fjarvistum starfsfólks. Fólk með ofnæmi og astma er sérstaklega viðkvæmt fyrir húsasótt.

Eru nóg að skipta um síur?

Þrátt fyrir eðlilegt viðhald, sem m.a. felst í síuskiptum, safnast óhreinindi, bakteríur og gerlar óhjákvæmilega innan í loftræstistokkana. Því er ekki nóg að skipta eingöngu um síur, heldur þarf að hafa reglulegt eftirlit með stokkunum sjálfum. Jafnframt þarf að hreinsa þá og sótthreinsa með jöfnu millibili.
Við bjóðum upp á mælingu á hita, raka, og Co2. til þess að kanna ástand íverusvæðis starfsfólks.

"Þetta er allt annað líf. Okkur líður miklu betur eftir að K-2 tók loftræstikerfið okkar í gegn. Við erum mjög ánægð með framgöngu starfsmanna K-2 og mælum með þessu fyrirtæki."
Umsögn frá Kópavogsbæ.


"Starfsfólk K-2 hreinsaði loftræstikerfið í Ísaksskóla og gerði það af lipurð og röggsemi. Greinileg fagmennska var höfð í fyrirrúmi og öll framkoma starfsfólks K-2 var til fyrirmyndar. Þá hefur starfsfólk Ísaksskóla haft á orði að andrúmsloftið sé greinilega betra. Öll samskipti við K-2 hafa verið mjög góð og við þökkum fyrir gott samstarf sem vonandi verður framhald á."
Umsögn frá Ísaksskóla í Reykjavík.


"Starfsmenn K-2 voru kurteisir, gengu hljóðlega um og unnu verk sitt mjög vel. Að verki loknu var allt skínandi hreint og vel frágengið."
Umsögn frá St. Jósefsspítala í Hafnarfirði.


Algengar spurningar sem við fáum um loftræstikerfi

A) Er ég að skipta óþarflega oft um síur?
B) Er ég að nota réttar síur?
C) Er kerfið að skila því sem ætlast er til af því?
D) Þarf að hreinsa kerfið, að hluta til eða í heild?
E) Er kerfið í góðu lagi?

Hafðu samband og pantaðu ástandsskoðun og tilboð, þér að kostnaðarlausu.
Vinnuregla okkar er einföld og skýr: Við bjóðum alltaf betur!

Sími: 568 3063

Vaktsími (allan sólarhringinn) 892 3063
Netfang
k-2@k-2.is