K-2 Skipaþjónusta

SkipaþjónustaAðbúnaður um borð í skipum; í káetum og öðrum vistarverum sem og á vinnusvæði, hefur mikla þýðingu hvað varðar vellíðan þeirra sem þar starfa. Skipið er "annað heimili" sjómannanna, sem margir hverjir dvelja lengur á sjó en heima hjá sér. Góðar og bjartar vistarverur með nauðsynlegum þægindum og góður matur hefur jákvæð áhrif á mannskapinn og gerir lífið um borð ánægjulegra.

Óloft í vistarverum um borð í skipum og slæmt drykkjarvatn eru óskemmtileg vandamál. Ýmis óheilsusamleg efni geta myndað óloft sem veldur höfuðverk, slappleika og vanlíðan. Óloft getur þannig haft bein áhrif á heilsu og árvekni skipverja og skipt sköpum á örlagastundu.

K-2 Loftstokkahreinsun býður upp á tvenns konar þjónustu fyrir skip; í öllum höfnum landsins: Annars vegar loftstokkahreinsun og viðhald og hins vegar vatnshreinsibúnað sem tryggir að drykkjarvatn um borð sé ávallt hreint og gott.

Loftstokkahreinsun

A) Alhliða loftræstihreinsun með bestu fáanlegu tækjum og búnaði.
B) Við sótthreinsum allt kerfið með náttúruvænum efnum eftir hreinsun og húðum með polymer. Þannig verjum við allt loftræstikerfið
og lengjum líftíma þess og höldum um leið örverum, bakteríum og öðrum óhreinindum í burtu.
C) Áður en sjálft verkið hefst metum við stöðuna nákvæmlega með því að gera úttekt á kerfinu.
D) Eðlilegt viðhald er framkvæmt með 6 mánaða millibili og þá með eftirliti, hreinsun og sótthreinsun. Þannig er hægt að tryggja að loftræsting
haldist góð og kerfið skili hámarksárangri.
E) Við vekjum athygli á því að nú geta viðskiptavinir okkar gert þjónustusamning við K-2 og þannig fengið bestu þjónustuna á bestu kjörum.
Fáðu upplýsingar hjá þjónusturáðgjafa K-2.

Vatnshreinsibúnaður

GOLD vatnshreinsitækin henta vel fyrir allar aðstæður þar sem þarf að sótthreinsa vatn. Hin miklu afköst útfjólubláu (UV) sótthreinsunarperanna leiða til mikillar hagkvæmni við að fjarlægja 99,9% af öllum bakteríum og vírusum úr vatninu. Með þessari aðferð þarf ekki að bæta neinum skaðlegum efnum út í drykkjarvatnið. Aðferðin er sú umhverfisvænsta sem völ er á við sótthreinsun drykkjarvatns.
Vegna hönnunar tækisins er allt viðhald einkar auðvelt og kemur ekki niður á afköstum við sótthreinsun vatnsins. Auðvelt er að skipta um UV-perurnar án þess að hindra vatnsflæðið í gegnum tækið. Hönnun kvarshólkanna í tækinu gefur hámarks útgeislun útfjólubláu geislanna og þar með hámarks afköst.
Þeir sem panta þjónustu okkar með 30 daga fyrirvara, frá þeim degi sem þjónusturáðgjafi hefur samband, fá sérstakan afslátt.

"Þetta eru fyrirmyndarpiltar sem unnu vel og fagmannlega. Við erum mjög ánægðir með þann góða tækjabúnað sem þeir hafa og þá þjónustu sem við fengum hjá K-2."
Umsögn frá Rannsóknaskipinu Dröfn.


"Starfsmenn K-2 hreinsuðu loftræstikerfið í Skógarfossi í fyrra. Við erum mjög ánægðir með þjónustuna og finnum greinilega breytingu til batnaðar. Það er einfaldlega miklu betra loft um borð og mun meiri kraftur á kerfinu."
Umsögn frá Hf. Eimskipafélagi Íslands




Vinnuregla okkar er einföld og skýr: Við bjóðum alltaf betur!
Hafðu samband núna og við komum á staðinn.

Logo

Kleppsvegur 134, 104 Reykjavík
Sími: 5683063
Vaktsími (allan sólarhringinn) 892 3063
k-2@k-2.is
Auglýsing